Umsóknir vegna sjóða eru undir SJÓÐIR.
Á valmyndinni hér til vinstri er að finna rafræn eyðublöð sem varða umsóknir um inngöngu í SV og gestaaðild.
Félagar í SV
Félagar í SV geta þeir orðið sem lokið hafa viðurkenndri prófgráðu í verkfræði.
Þeir sem lokið hafa viðurkenndri háskólaprófgráðu í þeim vísindagreinum sem
verkfræðin byggist á og aðrir fræðimenn í raunvísindum.
Félagsgjaldið í SV er 20.400 kr. á ári eða 1700 kr. á mánuði.
Ungfélagar í SV
Verkfræðinemar sem lokið hafa tveimur námsárum af háskólanámi í verkfræði, eða
vísindagrein sem verkfræðin byggist á, geta orðið félagar með takmörkuðum réttindum
og skyldum. Nefnast þeir ungfélagar.
Ungfélögum er heimil fundarseta með málfrelsi og tillögurétt. Þeir hafa ekki önnur
réttindi í félaginu. Þeir eru gjaldfrjálsir þegar þeir eru í námi.
Gestaaðild
Ef þú vinnur á einverju norðurlandanna, getur þú orðið gestafélagi í viðkomandi félagi í því landi sem þú vinnur í að því skilyrði uppfylltu að þú sért áfram félagi í SV, TFÍ eða VFÍ.
Samþykktin nær ekki til ungfélaga eða þeirra sem hættir eru vinnu.
Veljið eyðublað, fyllið út og sendið til skrifstofunnar. Staðfesting á móttöku er send sjálfvirkt til baka með tölvupósti. Skrifstofa SV veitir nánari upplýsingar um afgreiðslu umsókna. Senda má tölvupóst.
