Vísindasjóður - Ríki

Vísindasjóður

Í kjarasamningum SV við ríki, Reykjavíkurborg og Launanefnd sveitarfélaga er ákvæði um greiðslur í Vísinda- og starfsmenntunarsjóði. Verkfræðingar hjá ríki eiga aðild að Vísinda- og starfsmenntunarsjóði og verkfræðingar hjá sveitarfélögum eiga aðild að öðrum sjóði, Starfsmenntunarsjóði.

Í kjarasamningum sem giltu fram til ársins 1989 var ákvæði þess efnis að greidd skildu 0,22% af föstum mánaðarlaunum í svokallaðan Starfsmenntunarsjóð.
Þegar gerður var kjarasamningur 1989 var samið um að greiða 1,5% af föstum mánaðarlaunum í Vísindasjóð. Verkfræðingar starfandi hjá ríki völdu að slá þessum sjóðum saman í Vísinda- og starfsmenntunarsjóð SV. Framlag ríkisins í sjóðinn er því 1,72% af föstum mánaðarlaunum.

Stjórn sjóðsins skipa:

Arnór B. Kristinsson
Geir Guðmundsson

Fulltrúi fjármálaráðherra:
Gunnar Gunnarsson

Stjórnarfundir eru haldnir reglulega síðustu viku mánaðanna mars, júní, september og um miðjan desember. Á stjórnarfundum eru umsóknir sjóðfélaga afgreiddar

Upphæð hámarksstyrkja er 450 þúsund kr. Um réttindasöfnun má lesa í starfsreglum.

Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, kaupa á bókum, tölvum o.s.frv. Upphæð tölvustyrkja er 200 þúsund kr. Fjögur ár þurfa að líða milli tölvustyrkja.

Rafrænt umsóknareyðublað er hér til vinstri á síðunni. Athugið að skila verður frumriti af reikningum.

Nánari upplýsingar og fyrirspurnir.



Senda grein


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica