Starfsmenntunarsjóður
Starfsmenntunarsjóður Stéttarfélags verkfræðinga (SV) fyrir verkfræðinga hjá Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum starfar samkvæmt samkomulagi við Reykjavíkurborg, sem undirritað var 16. mars 1990, en gilti frá júní 1989.
Í kjarasamningum sem giltu fram til ársins 1989 var ákvæði þess efnis að greidd skildu 0,22% af föstum mánaðarlaunum í svokallaðan Starfsmenntunarsjóð.
Þegar gerður var kjarasamningur 1989 var samið um að greiða 1,5% af föstum mánaðarlaunum í Vísindasjóð. Verkfræðingar starfandi hjá Reykjavíkurborg völdu að slá þessum sjóðum saman í Starfsmenntunarsjóð SV. Framlag í sjóðinn er því 1,72% af föstum mánaðarlaunum.
Verkfræðingar, sem starfa hjá öðrum sveitarfélögum geta verið félagar í sjóðnum svo fremi að þeir eigi ekki aðild að öðrum sambærilegum sjóðum. Það var þó ekki fyrr en í kjarasamningi árið 2001 við Launanefnd sveitarfélaga að ákvæði um greiðslu í Starfsmenntunarsjóð komu í kjarasamning.
Tekjur sjóðsins eru framlög úr borgarsjóði og öðrum sveitarsjóðum, 1,72% af föstum mánaðarlaunum félagsmanna eins og áður kom fram.
Stjórn sjóðsins skipa:
Árni Ísberg
Þorsteinn Sigurjónsson
Fulltrúar Reykjavíkurborgar:
Emma Árnadóttir
Árni Ragnar Stefánsson
Stjórnarfundir eru haldnir reglulega síðustu viku mánaðanna mars, júní, september og um miðjan desember.
Á stjórnarfundum eru umsóknir sjóðfélaga afgreiddar. Upphæð hámarksstyrkja er 480.000 kr. Um réttindasöfnun má lesa í starfsreglum sem eru á stikunni hér til vinstri á síðunni. Þar er einnig umsóknareyðublað. Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, kaupa á bókum, tölvum o.s.frv. Upphæð tölvustyrkja er 200.000 kr.
Rafrænt umsóknareyðublað er hér til vinstri á síðunni. Athugið að stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að kalla eftir frumriti af skönnuðum reikningum eða símbréfum.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir.
