Vetrarleiga

Vetur

Haust- og vetrarleiga 2010-2011

Í vetur verða eingöngu orlofshúsin tvö í Hraunborgum í boði hjá Orlofssjóði SV þar sem farið verður í verulegar breytingar á bústöðunum að Geirlandi við Kirkjubæjarklaustur og í Húsafelli.

Leiga er kr. 12.000 fyrir vikuna og er félagsmönnum í sjálfsvald sett hvort þeir nýta hana alla. Greiða verður leiguna innan sólarhrings frá bókun. Húsin eru leigð frá morgni fimmtudags til kl. 16 næsta miðvikudag en þá þarf að rýma húsin.

Nánari upplýsingar má finna á stikunni hér til vinstri. Þar er einnig hægt að sjá hvaða vikur eru lausar.

 

Greiðsluupplýsingar vegna leigu:

Vinsamlega greiðið innan sólarhrings frá bókun. 

Að gefnu tilefni skal tekið fram að orlofsleiga er ekki endurgreidd.

 

Greiða skal inn á bankareikning: 0334-26-050636. Kennitala: 620269-6629

Afrit til staðfestingar greiðslu sendist á netfangið: sv@verktaekni.is. Lyklahús eru við dyr orlofshúsanna og er aðgangskóði sendur leigjanda í tölvupósti þegar gengið hefur verið frá bókun og greiðslustaðfesting móttekin.

Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða á haustin og veturna en áhugasamir eru beðnir að snúa sér beint til skrifstofu með tölvupósti

 

Félagsmenn sem ekki eru í OSV

Þeir félagsmenn Stéttarfélags verkfræðinga sem ekki er greitt fyrir í Orlofssjóð SV geta sótt um bústaðina með viku fyrirvara en greiða þá 50% álag á leigugjaldið. Ef félagsmenn eru í vafa hvort greitt er fyrir þá í Orlofssjóðinn eru þeir beðnir um að hafa samband við skrifstofu SV sem veitir nánari upplýsingar


Senda grein


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica