Klettastígur 4
Klettastígur 4
Orlofssjóður SV býður sjóðfélögum þriggja herbergja íbúð á Klettastíg til leigu á tímabilinu 8. mars fram að sumarúthlutun. Um úthlutun gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni um leiguverð og nánari tilhögun.
Helgarleiga er kr. 12.000 frá kl. 16 á föstudegi til kl. 16 á sunnudegi eða tvær nætur.
Vikuleiga er kr. 24.000.
Hver aukanótt kr. 4.000.
Orlofsíbúð við Klettastíg 4, 3. hæð - 3ja herbergja íbúð með svölumStærð er 70 m² að grunnfleti
3 svefnherbergi,
5 rúmstæði
Sængur og koddar fyrir 6
2 aukadýnur
Sjónvarp og útvarp
Þvottahús á neðstu hæð
Íbúðin er þriggja herbergja íbúð, 70 m². að Klettastíg 4. Húsið er nýlegt fjölbýlishús. Íbúðin er á 3. hæð merkt h. Allir algengustu húsmunir og eldhúsáhöld fylgja. Svefnstæði eru fyrir fimm: tvíbreitt rúm í svefnherbergi, tvíbreiður svefnsófi í stofu, einstaklingsrúm í herbergi og tvær lausar dýnur. Sjónvarp og útvarp er í íbúðinni en ekki DVD spilari. Á neðstu hæð er þvottahús en umsjónarmaður afhendir lykla. Hægt er að leigja sængurföt, aukadýnur og sængur. Barnarúm og barnastól fást hjá umsjónarmanni.
Akureyri er alltaf skemmtileg heim að sækja hvort sem sóst er eftir hreinni afslöppun, afþreyingu, menningu, listum eða öllu í bland. Í bænum er ótal margt í boði auk þess sem tilvalið er að bregða undir sig betri fætinum og skreppa í skemmtilegar dagsferðir um nágrennið.
Áhugaverðir vefir: www.akureyri.is/ www.eyjafjordur.is www.nat.is/
Reynt er að færa bókanir inn jafnóðum og má sjá stöðu þeirra í töflunni hér fyrir neðan. Dagsetningar eiga við um helgar en hægt er að bæta við dögum.
| Dagar | Staða |
|---|---|
|
12.3.-14.3. |
Bókað |
| 19. 3.-21.3. | Bókað |
| 26.3.-31.3. | Bókað |
| 2.4.-5.4. | Bókað |
| 7.4.-9.4. | Bókað |
|
9.4.-11.4. |
Bókað |
| 16.4.-18.4. | Bókað |
| 22.4.-25.4. | Bókað |
| 30.4.-2.5. | Bókað |
| 7.5.-9.5. | Bókað |
| 14.5.-16.5. | |
|
21.5.-24.5. |
Bókað |
|
28.5.-30.5. |
|
|
|
