Orlofssjóður

Orlofssjóður

Orlofssjóður Stéttarfélags verkfræðinga (OSV) hefur starfað frá árinu 1997.

Félagar í Orlofssjóði SV eru allir félagsmenn SV sem greiða eða greitt er fyrir í sjóðinn. Iðgjöld í sjóðinn eru 0,25% af launum og greiðast af vinnuveitanda. Í sjóðinn er nú greitt fyrir verkfræðinga hjá ríki og Reykjavíkurborg auk flestra á almennum markaði að undanskildum verkfræðistofum, en þær skila í undantekningartilvikum greiðslum í sjóðinn. Sjálfstætt starfandi verkfræðingar geta greitt í sjóðinn.

Orlofssjóðurinn hefur vaxið hratt og hafa fjölmargir félagsmenn notið orlofsdvalar fyrir tilstilli sjóðsins. Á sumrin byggist starfsemin að mestu á að endurleigja félagsmönnum sumarbústaði og íbúðir víða um land.

Orlofssjóðurinn á fjögur hús sem eru staðsett í Hraunborgum í Grímsnesi, eitt sumarhús í Húsafelli og eitt í landi Geirlands við Kirkjubæjarklaustur.

Nánari upplýsingar um það sem er í boði á vegum sjóðsins má finna á stikunni hér til vinstri.

Fyrirspurnir.

Reglugerð Orlofssjóðs SV.



Úthlutunarreglur OSV

Úthlutað er eftir S-punktum. Þeir eru reiknaðir út frá sjóðsaldri í OSV en til frádráttar kemur fjöldi úthlutana hjá sjóðnum á sumar- og páskaorlofstíma síðustu fimm ára. Forgjöf eru 30 punktar við inngöngu í sjóðinn og ávinnst síðan 1 punktur fyrir hvert ár.

S - punktar eru reiknaðir þannig út:

                   30 + sjóðsaldur

S =   _____________________________

            1 + fjöldi úthlutana síðustu 5 ár

 

Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða á haustin og veturna en áhugasamir eru beðnir að snúa sér beint til skrifstofu með tölvupósti.

Auk gistimöguleika OSV má benda á leiguvef fyrir sumarbústaði sem er rekinn af einkaaðilum.  Vefsíða þessi er hugsuð sem leigumarkaður fyrir sumarbústaði, sumarhús, heilsárshús, hjólhýsi, tjaldvagna o.fl.

 

Senda grein


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica