Akstursgreiðslur
Akstursgreiðslur
Þegar starfsmaður leggur til eigin bifreið afnota fyrir vinnuveitanda eru mismunandi hvernig greitt er fyrir afnotin.
Venjulega er greitt samkvæmt svokölluðu kílómetragjaldi. Þá er ýmist gerður samningur um afnotin og greitt fyrir ákveðinn fjölda kílómetra eða starfsmaður færir akstursbók og fær greitt fyrir ekna kílómetra.
Þegar ákveða á greiðslu er algengt að miða við "akstursgjald ríkisstarfsmanna" en upplýsingar um það má finna á vef fjármálaráðuneytisins. Athugið að hægt er að fá tilkynningu í tölvupósti þegar nýjar upplýsingar um ferðakostnað eru settar á síðuna.
