Kjarakannanir

Kjarakannanir

Frá árinu 1988 hefur Stéttarfélag verkfræðinga (SV) gert árlega könnun á kjörum verkfræðinga sem starfa á Íslandi. Markmiðið með könnununum hefur verið að afla sem gleggstra upplýsinga um kaup og kjör verkfræðinga í hinum ýmsu starfsgreinum.

Könnunin og úrvinnsla hennar er unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.
Með því er þátttakendum í könnuninni tryggð nafnleynd og hlutleysi í úrvinnslu, auk þess sem stofnunin aflar leyfis Tölvunefndar til gagnaskráningar.

Það er skoðun SV að upplýsingar um laun og önnur starfskjör verkfræðinga séu nauðsynlegar til að unnt sé að gera raunhæfa samninga um kaup og kjör. Kjarakönnun er leið til að afla slíkra upplýsinga.

Niðurstöðurnar eru gefnar út í bæklingi sem sendur er öllum félagsmönnum Stéttarfélagsins og þeim verkfræðingum öðrum sem taka þátt í könnuninni.
Markaðslaunatafla Stéttarfélagsins byggist á niðurstöðum Kjarakönnunarinnar.



Senda grein


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica