Kjaramál

Kjaramál

Kjarakannanir

Stéttarfélagið gerir stóra kjarakönnun einu sinni ári. Til þess að tryggja nafnleynd hefur úrvinnsla kjarakönnunarinnar frá upphafi verið í höndum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands.

Niðurstöðurnar eru gefnar út í bæklingi sem sendur er öllum félagsmönnum Stéttarfélagsins og þeim verkfræðingum öðrum sem taka þátt í könnuninni.
Markaðslaunatafla Stéttarfélagsins byggist á niðurstöðum Kjarakönnunarinnar.


Markaðslaunatafla

Stéttarfélag verkfræðinga gefur út markaðslaunatöflu tvisvar á ári.

Markmiðið með útgáfu markaðslaunatöflu Stéttarfélags verkfræðinga er að upplýsa félagsmenn um þau laun sem verkfræðingum eru almennt greidd. Það er alveg ljóst að víðtæk og góð launakönnun ásamt ítarlegum upplýsingum um hvernig nota má hana í launabaráttu er beitt vopn í höndum launþega og þá sérstaklega þeirra sem semja sjálfir um kaup og kjör á almenna markaðnum.

Markaðslaun teljast allar greiðslur sem verkfræðingurinn fær fyrir þann vinnutíma sem almennt telst vera dagvinnutími á hverjum tíma. Til markaðslauna teljast ekki greiðslur fyrir unna yfirvinnu né heldur hvers konar endurgreiðslur á útlögðum kostnaði.

Það eru eindregin tilmæli stjórnar SV að verkfræðingar sættist ekki á laun sem eru undir markaðslaunum. Markaðslaunin eru þau laun sem vel flestum verkfræðingum hefur tekist að semja um við vinnuveitendur.


Senda grein


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica