Fréttir
Kjör skerðast hjá ríkinu
Þar er fyrst og fremst skorið niður í eftirfarandi liðum:
- Fækkun tilfallandi yfirvinnutíma.
- Fækkun á föstum yfirvinnutímum.
- Uppsögn aksturssamninga.
- Dagpeningagreiðslur lagðar af.
Yfirvinnubann er á mörgum ríkisstofnunum og hefur yfirvinna dregist saman að meðaltali um 20% á fyrstu 6 mánuðum árins 2009 skv. upplýsingum fjármálaráðuneytisins. Umsömdum föstum yfirvinnutímum fækkaði að sama skapi um 7% á tímabilinu. Í þessum útreikningum er ekki að finna skerðinguna sem þegar hafði átt sér stað þrjá síðustu mánuði ársins 2008 og ekki er að finna samantekt á raunverulegri launaskerðingu vegna uppsagna á aksturs-samningum, það er ef kostnaður við akstur var að jafnaði lægri en nam aksturgreiðslum. Eins hefur ekki komið fram hver skerðingin er þegar greiðslum um ferðakostnað er breytt úr dagpeningum í greiðslur samkvæmt reikningi.
Gefið hefur verið út að heildarlaun umfram 400 þúsund krónur lækki um 3-10% en til þessarar skerðingar telst einnig samdráttur sem þegar hefur átt sér stað hjá ríkinu samkvæmt fréttum frá fjármálaráðuneytinu.
Það er því nauðsynlegt að hver og einn félagsmaður sem starfar hjá ríkinu fylgist vel með hvað launaskerðingin er mikil og gæti þess að hún fari ekki umfram viðmiðunarprósentur.
