Fréttir

Fyrirsagnalisti

7/7/10 : Kjarakönnun SV 2010

Niðurstöður Kjarakönnunar SV 2010 eru birtar á vefnum.  Í könnuninni var spurt um laun á árinu 2009 og mánaðarlaun í febrúar 2010. Ný markaðslaunatafla verður birt hér á vefnum innan tíðar.

 

7/1/10 : Skrifstofan er lokuð í júlí

Vinsamlega athugið að skrifstofa félaganna verður lokuð frá og með 1. júlí til 2. ágúst vegna sumarleyfa.

 

6/30/10 : VerkTækni golfmótið verður 6. ágúst

Árlegt golfmót verkfræðinga og tæknifræðinga, VerkTækni Opið, verður haldið á Strandarvelli við Hellu föstudaginn 6. ágúst. Nánari upplýsingar.

 

6/30/10 : Eyjafjallajökull og flugrekstur

Dagana 15. - 16. september mun Flugakademía Keilis standa fyrir ráðstefnu um eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur. Til ráðstefnunnar hefur verið boðið vísindamönnum, forráðamönnum í flugrekstri og fulltrúum opinberra aðila. VFÍ og TFÍ eru samstarfsaðilar Keilis við undirbúning ráðstefnunnar og fá félagsmenn 50% afslátt af þátttökugjaldi.

Lesa meira
 

6/21/10 : Rafræn fræðslukönnun

Félagsmönnum í VFÍ, TFÍ og SV hefur verið send stutt fræðslukönnun. Markmiðið er að kanna áhuga félagsmanna og fá upplýsingar um hvernig hægt er að koma til móts við óskir þeirra þegar kemur að framkvæmd og skipulagi námskeiða á vegum Endurmenntunar HÍ. Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í könnuninni en hún verður opin til 24. júní.

 

6/11/10 : Sjóðfélagafundur Lífsverk

Sjóðfélagafundur var hjá Lífeyrissjóði verkfræðinga 26. maí. Fundargerðin er birt á vefsíðu sjóðsins. Á fundinn mættu um 100 manns. Fjallað var um afskriftir á árunum 2008 - 2010, eignasafn sjóðsins, tryggingafræðilega stöðu og fjárfestingarstefnu. Þá urðu umræður um stöðu stjórnarmanna í kjölfar þess að vantrausttillaga á stjórn sjóðsins var samþykkt á aðalfundi sem haldinn var 22. apríl.

 

6/4/10 : Sumarstarf fyrir byggingarverkfræðinema

Byggingarverkfræðideild Verkfræðingafélags Íslands (BVFÍ) og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (málræktarsvið) auglýsa eftir styrkþega til þess að vinna að þróunarverkefni um íðorðagerð í byggingarverkfræði í sumar. Nánari upplýsingar.

 

6/2/10 : Lausar vikur í orlofshúsum í sumar

Sumarúthlutun Orlofssjóðs SV er lokið. Örfáar vikur í júní eru lausar. Nú gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær, en athygli skal vakin á því að eingöngu er svarað tölvupósti ef umbeðin vika er laus. Taka þarf fram stað, viku og tímabil sem óskað er eftir. Einnig viljum við minna á útilegukortið sem verður til sölu hjá okkur í sumar fyrir félaga í Orlofssjóði SV. Verð kr. 11.500.-

Lesa meira

 

6/1/10 : Nokkur sæti laus í Rýnisferðina

Vegna forfalla eru nokkur sæti laus í Rýnisferðina sem farin verður 2. - 7. september. Ferðin er skipulögð af Tæknifræðingafélagi Íslands en verkfræðingar eru velkomnir í ferðina. Skjalið sem hér fylgir inniheldur dagskrána og upplýsingar um skráningu og kostnað. Þess ber að geta að sjóðfélagar í vísinda- og starfsmenntunarsjóðum KTFÍ og SV geta sótt um styrk til ferðarinnar hjá viðkomandi félagi.
 

5/5/10 : Breytingar á starfsreglum Styrktarsjóðs

Nýverið gengu í gildi umtalsverðar breytingar á starfsreglum Styrktarsjóðs SV. Nær allir styrkir vegna útlagðs kostnaðar hækka, má þar nefna styrki vegna líkamsræktar, tannviðgerða, heyrnartækja, sjóntækja og laseraðgerða. Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér starfsreglurnar og nýta réttindi í sjóðnum. Sjóðfélagar eru starfsmenn ríkis og sveitarfélaga.
 

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica