Ertu félagi?
Helstu kostir aðildar verða taldir upp hér
Stéttarfélag verkfræðinga er öflugur málsvari félagsmanna.
Stéttarfélag verkfræðinga er málsvari verkfræðinga í kjaramálum og gætir hagsmuna þeirra. Félagið hefur yfirgripsmiklar upplýsingar um kjaramál verkfræðinga og stöðu þeirra á vinnumarkaði. Í deilumálum sem upp kunna að koma er félagið traustur samherji og veitir aðgang að lögfræðilegri ráðgjöf. Félagið er mótandi afl í sókn verkfræðinga að bættum kjörum.
Félagsmenn geta leitað til sviðsstjóra kjaramála sem veitir ráðgjöf og þjónustu um hvaðeina sem varðar kjör þeirra og samskipti við vinnuveitanda.
Sviðsstjóri kjaramála er Þrúður G. Haraldsdóttir.
