Á döfinni - apríl 2010

15.04.2010 Sameiginlegir atburðir Vettvangsferð BVFÍ í Hörpuna

Vettvangsferð Byggingarverkfræðingadeildar VFÍ (BVFÍ) um framkvæmdasvæði Tónlistarhússins við Reykjavíkurhöfn - Hörpuna. Mæting er kl. 8.00 í vinnubúðum ÍAV á staðnum. Tæknimenn ÍAV munu segja frá framkvæmdunum og fara yfir helstu tölur. Boðið verður upp á kaffi, te og léttar veitingar. Síðan verður farið í skoðunarferð um framkvæmdasvæðið. Áætluð lok eru um eða upp úr 9.30. Skylda er að vera með hjálm á svæðinu og eru þátttakendur hvattir til að taka með sér hjálm. ÍAV lánað hjálma ef fólk hefur ekki hjálma sjálft. Skráning er hafin á skrifstofu félagsins á netfanginu skrifstofa@verktaekni.is og í síma 535-9300. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 14. apríl nk.
 

29.04.2010 Sameiginlegir atburðir Fræðslufundur um byggingargalla

Byggingarverkfræðingadeild VFÍ býður til fræðslufundar um byggingargalla. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 8 og lýkur kl. 10. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar. Flutt verða þrjú framsöguerindi: Sverrir Jóhannesson, Eflu. - Byggingargallar, dæmi af vettvangi. Björn Marteinsson, NMÍ. - Gallar í þökum. Jón Sigurjónsson, NMÍ. - Gallar í þökum.
 

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica