10.06.2010
Sameiginlegir atburðir
Mannvirkjaiðnaður á tímamótum
Getur gæðastjórnun hjálpað?
Eyjólfur Bjarnason, gæðastjóri ÍAV, verður gestur á Samlokufundi VFÍ og TFÍ fimmtudaginn, 10. júní. Hann flytur erindið: Mannvirkjaiðnaður á tímamótum.—Getur gæðastjórnun hjálpað? Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 12-13. Að venju fá félagsmenn samlokur og drykki án endurgjalds, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir. Allir velkomnir.
16.06.2010
Sameiginlegir atburðir
Kynningarfundur Almenna lífeyrissjóðsins
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, mun kynna stöðu sjóðsins og framtíðarhorfur. Á fundinn mætir einnig Páll Á. Pálsson, formaður stjórnar og munu Gunnar og Páll svara fyrirspurnum að lokinni kynningu. Sjóðfélagar úr hópi tæknifræðinga og verkfræðinga eru eindregið hvattir til að mæta. Fundurinn verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 12-13. Að venju fá félagsmenn ókeypis samlokur og drykki, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir. Vefsíða Almenna lífeyrissjóðsins, www. almenni.is